LEIT

Búaðföng var stofnað árið 1999, stofnandi og eigandi er Lúðvík Bergmann.  Reksturinn hófst með innflutningi á fjölkornaáburði frá Danmörku.  Fyrstu tvö árin var starfssemin rekin í einu litlu herbergi heima hjá Lúðvík og konu hans, Elísabetu Maríu Jónsdóttur.  Þegar herbergið þótti orðið of lítið var aðsetrið flutt að Stórólfsvelli við Hvolsvöll og þar hefur fyrirtækið vaxið og dafnað.  Í dag sérhæfir Búaðföng sig í helstu aðföngum fyrir bændur og má þar nefna áburð, rúlluplast, fóður, gasolíu, girðingarefni og margt fleira.  Hjá fyrirtækinu starfa fjórir fastir starfsmenn og nokkrir lausráðnir sölumenn.




© Búaðföng/bu.is - Stórólfsvelli - Box 37 - 860 - Hvolsvelli - 487 8888 -bu@bu.is