Við erum í samstarfi við Lífland og seljum flestar tegundir fóðurs til okkar viðskiptamanna. Að auki rekum við í samstarfi við Stórólf ehf. kornþurrkun og fóðurúrvinnslustöð á Stórólfsvelli við Hvolsvöll. Þar þurrkum við korn fyrir bændur og vinnum fóður úr því eftir óskum hvers og eins.